Web Analytics
GÆÐI OG GÆÐAEFTIRLIT

Hólmadrangur ehf. hefur virkt og öflugt gæðakerfi í samræmi við ýtrustu kröfur markaðarins. Þannig er bæði verksmiðjan og gæðakerfið árlega tekið út af óháðum úttektaraðila (EFSIS) að kröfu samtaka breskra smásala (BRC). Auk þess gera einstaka verslunarkeðjur Bretlands sínar eigin úttektir með reglulegu millibili. Meðal aðila sem hafa samþykkt verksmiðju Hólmadrangs ehf. er stærsta verslunarkeðja Bretlands, TESCO. Til viðbótar er verksmiðjan einn af þeim vinnsluleyfishöfum sem hlotið hafa samþykki til innflutnings afurða til Rússlands af þarlendum yfirvöldum.

Hólmadrangur ehf., Kópnesbraut 2, 510 Hólmavík
Sími: 455 3200
Fax 455 3209
Netfang: holm@holm.is
Veffang: http://www.holm.is
Vefhönnun: Emstrur